Kæri lesandi

Ég var ekkert að grínast með þetta, djöfull leiðist mér. Sjá næst síðustu færslu.

Í öðrum fréttum, Eivör Pálsdóttir hefur sagt já við bónorði mínu! Í öllum mögulegum skilningi nema í alvöru. Mæli samt ótrúlega mikið með hennar sjúklega fallegu rödd.

- Einhver tekið eftir því hversu ótrúlega huggandi það er að vera þunglyndur? Afsakar alla leiðinlega hegðun.

4 Responses to “Hjalli litli og fleiri leiðindi”

  1. Sandra Maria Says:

    Æji, afhverju sagðirðu mér ekki að þú ættir afmæli 27 ??
    HA? ..
    Jæja, einum degi of seint en ég meina það er betra en aldrei !! Til hamingju með afmælið mús ;*

  2. kakalinn Says:

    Sandra María: Takk kærlega! Ég sagði engum því ég er að reyna að láta sem þetta afmæli gerðist ekki. En ég er samt mús =x

  3. Fanney V Says:

    Frekar vandræðalegt með þetta með lesandann… Lesandinn hefur þá að öllum líkindum verið Jónsi ÍSF eða Jónsi í Sigurrós… Og þeir sem héldu að þú værir að tala við þá..

    Til hamingju með Eivöru, reikna með því að ég fái boðskort í brúðkaup bráðlega, í öllum skilningi nema alvöru.

  4. kakalinn Says:

    Fanney V: Jónsi ÍSF?! Bjé lotna við að heyra það nafn! Leitt að valda þeim vonbrigðum. Annars eru boðskortin í formi svisslenskrar lúðrasveitar, ekki láta þér bregða ef þú verður skyndilega vör við kynlega tóna fyrir utan húsið þitt.


Leave a Reply