Kæri lesandi

Klukkan 20:00 – Miðvikudagurinn 4. apríl – Sláturhúsið – Egilsstöðum

Þetta eru ekki hyllingar eða gylliboð kæri lesandi, það er svo sannarlega uppistand næsta miðvikudag og eru engin meðalmenni þar á ferðinni. Svei mér þá engan veginn. Pétur “Gullbarkinn” Ármannsson mun kynna herlegheitin, lifandi tónlist mun skekja búka ykkar og þeir sem fram koma eru: Hjalti Jón Sverrisson, Hjálmar Kakali Baldursson, Hákon Seljan, Jónas Reynir Gunnarsson og Björgvin Gunnarsson.

FRÍTT INN

Ég mun persónulega blogga um hvern einn og einasta sem mætir, vilt þú fá blogg um þig hér?
Verið þar, ellegar ferningar.

5 Responses to “Hjalli litli og uppistand”

  1. Helgi Says:

    Ég vil blogg um mig hérna! ÉG MÆTI!

  2. Fanney V Says:

    Ég mæti í öllum skilningi.. nema í alvöru…
    Bið að heilsa Eivöru

  3. Björg Says:

    Jebb, ég kem. En það er bara af því ég vil blogg um mig, ekki af því að þið eruð fyndnir.. höfum það á hreinu.

  4. kakalinn Says:

    Helgi: Þetta er rétti andinn!

    Fanney V: Frétti að það væri skylda að mæta =/ Eivör biður að heilsa á móti, í öllum mögulegum skilningi, nema í alvöru.

    Björg: Dytti það ekki til hugar að halda að við hefðum einhverskonar hnyttni falda á meðal vor. Fásinna.

  5. kakalinn Says:

    Ég var augljóslega að ljúga þegar ég sagðist ætla að blogga um hvern og einn sem mætti á uppistandið, það myndi aldrei ganga upp, ég þekkti ekki helminginn og það tæki algjörlega of langann tíma. Leitt að valda þeim vonbrigðum sem voru heldur betur, alltof bjartsýnir.


Leave a Reply