Kæri lesandi

Þú getur hætt að fela dætur þínar, ég er aftur farinn úr landi. Ferðalögin ganga smurt fyrir sig en þau eru afskaplega leiðinleg, sérstaklega þegar ég er bara einn á ferðinni. Kannski það ætti að finna upp uppblásinn ferðafélaga, ég myndi ekki skammast mín fyrir að kaupa svoleiðis. Við gætum drukkið okkur fulla í flugvélinni, grínast í flugfreyjunum, ónáðað nærliggjandi farþega, sett blásturdraslið (sem hangir fyrir ofan hausinn á okkur) á fullt og miðað því á sköllótta manninn fyrir framan okkur, syngja óþægilega hátt, hvílt höfuðið á öxlunum á hvorum öðrum, nudda auma staði á hvorum öðrum, ganga í hálofta félagið inná baðherbergi, millilenda í færeyjum, lamdir og vera skildir eftir. Þetta allt hefði verið miklu skemmtilegra með ferðafélaga.

En ó vei, ég er dæmdur til að vera hæfileikalaus bóhem sem ferðast afskaplega, afskaplega einn. Ég sofnaði í fluginu og svaf alla leiðina, mér til skrækjandi hamingju fékk ég martöð. Þetta er í fyrsta skipti sem mig dreymir eitthvað í flugvél og það skal sko sannarlega vera martröð, einkennandi fyrir mig og mitt ömurlega slímuga líf. Mig dreymdi að ég væri nákvæmlega á sama stað og þegar ég var vakandi með sama fólk í kringum mig. Svo raunverulegur var þessi draumur að ég áttaði mig ekki á því að þetta væri draumur. Flugvélin flaug inní “loftgat” einhverskonar þar sem flugvélin fellur beint niður vegna skorts á einhverju sem ég hef ekki hugmynd um hvernig á að útskýra. Allavega, afskaplega slæmt. Ég missi furðu lítið stjórn á mér en fæ ógeðis tilfinningu í magann, þessa sem þú færð þegar bíll hossast* upp og niður. Þetta gerist aftur með sömu afleiðingum og svo í þriðja sinn, þá stekkur stelpan, sem sat fyrir framan mig, til og ælir í kjöltuna á manninum sem situr við hliðina á mér. Sjálfur er ég að íhuga það sama. Ég vakna svo eftir það, en er ekki alveg að átta mig á því að þetta hafi verið draumur, ég horfi í kringum mig og sé að allir eru rólegir, ég lít snögglega á manninn við hliðina á mér, en hann virðist vera alveg laus við ælu. Ég er samt með gríðarlega tilfinningu í maganum sem öskrar á ælu, piss og blóð. Ég kyngi því öllu saman og held áfram að láta mig dagdreyma um uppblásinn ferðafélaga.

*Er þetta orð? hljómar mikið frekar eins og bara eitthvað fáránlegt hljóð sem þú heyrir rétt áður en þú sofnar en hugsar ekki frekar um.

Leave a Reply