Hjalli litli og blóm

apríl 18, 2007

     Kæri lesandi

Nýlegt krot að minni hálfu, það liðu um það bil 5 min frá því að ég var ánægður með þetta þangað til ég varð óánægður með þetta.
Heartrip

Það er allt í blóma hérna í Winchester á englandi, enda er veðrið ótrúlega gott. Ég keypti blómvönd núna fyrir þremur dögum síðan að tilefni þess að kær vinkona mín ætlaði sér að vera komin aftur til Winchester. En vegna óviðráðanlegra aðstæðna tafðist hún og er enn ekki komin. Til að bjarga greyið blómunum frá því að klára ekki sitt eina verkefni í lífinu, að lykta vel fyrir unga dömu, þá plantaði ég þeim í vaskinn á baðherberginu mínu. Þar bíða þau þess að geta lokið sínu verkefni og fara síðan í ruslið að öllum líkindum. En ég verð að viðurkenna að það er einkar vinalegt að hafa blómvönd í vaskinum hjá sér. Þessi vel lyktandi gróður blasir við manni og gefur annars litlausu baðherberginu bæði lit og líf, ég er farinn að líta á þá sem vini mína, ég finn að nafn fyrir blómvöndinn er á leiðinni, Hans, Kristján, Pétur eða Hans kristján pétur eru þau nöfn sem kalla á mig. Mig hlakkar hreinlega til að fara á baðherbergið núna. Það athæfi hefur aldrei verið jafn spennandi.

Í öðrum fréttum, ég hef ekki þvegið mér um hendurnar í fjóra daga núna. Ástæðan fyrir þeirri athöfn, eða vant af, er enn sem komið er ókunn. Aðspurðir sérfræðingar segja að ég sé hálfviti.

12 Responses to “Hjalli litli og blóm”

  1. Jonni Says:

    Þetta er glæsileg mynd, wa-wa-weeva! Dirty old bitch!
    (It’s old dirty bastard.)
    Hank: Oh, right right.

  2. Hrafnhildur Says:

    klárlega Kristján…

  3. Hildur Evlalía Says:

    Djöfull ertu hæfileikaríkur!!

  4. Hjalli Says:

    Jonni: Takk, þú ert sjálfur ekki svo slæmur. Hringdu.

    Hrafnhildur: Já er það ekki? Ég var einmitt að hugsa það.. á eftir Pétri.

    Hildur Evlalía: Enda í nánu samneyti við djöfulinn, fátt leiðinlegra en að sofa hjá skratta sem hefur alltof stórt typpi :/

  5. Fanney V Says:

    Glæsileg mynd, algjörlega!
    Myndi nefna blómvöndinn Björgólf. Þá gæti hann kannski grætt pening og þú notið góðs af.. og Eivör að sjálfsögðu.

  6. Gráa_Tóan Says:

    Þá er komið að því, nafnið á blómonum er auðvitað Steingrímur Njálsson, Hér eru nokkrar ástæður fyrir því
    1. þau horfa á þig gera no. 1 og 2 og líta ekki undan
    2. þeim fynst ligtinn af óþrifnum höndum þínum bara notaleg og vilja að þú snertir sig.
    3. voru upphaflega ætluð stúlkum en enda æfina við að ligta af ungum drengjum að kúka.

    fín mynd,

    þú veist að það er tákrænt að láta hluti spítast úr maganum.

    smá sálfræði; sætt

    When all else fails

    vote from the Rooftops


  7. Fanney V: Bjorgolfur, jaaa, eivor var eitthvad ekki alveg satt vid thann titil. En peningar hljoma vel. Thratt fyrir ad eg hati tha thvi hvort sem eg vil thad eda ekki stjorna their lifi minu.

    Graa_Toan: Eg hafdi ekki hugsad um blomvondinn i thessu ljosi adur, thu getur verid viss um ad hann er ad fa bestu salgreiningarthjonustu sem vol er a.

  8. Heiðdís Fjóla Says:

    bloggaðu blómadrengur bloggaðu!

  9. Sigfús Fjári Says:

    ▲ What she said.
    ۖ۩

  10. Hjalli Says:

    Heiddis Fjola: Skemmtileg tilviljun thetta, eg fjarfesti i nyjum hatt um daginn og a hann hef eg fest blom. Svo ja eg er sannkalladur blomadrengur.

    Sigfus Brodir: Wh00t! Thid getid verid viss um ad eg blogga a morgun ad fullum krafti og kannski lauma eg inn nyju kroti i leidinni. Thangad til a morgun, bae og eitthvad.

  11. Heiðdís Fjóla Says:

    á morgun er komin og farinn!
    þú verður þá líklega að blogga í dag eða hinn *-)


  12. Vívíváva….
    Ég er búin að gleyma í langan tíma að lesa bloggið þitt, en það var nú allt í lagi þar sem að það er nú eitthvað lítið á henni. En forlát (ekki forljót) teikning blasir þó við.

    Mig langar í blóm :(


Leave a Reply