Kæri lesandi

Ég hef ekki skrifað hér inn í all langan tíma, ástæðan fyrir því er margþætt. Í fyrsta lagi er ég einfaldlega ógeðslega latur að eðlisfari, eitt af mínum uppáhalds höfuðsyndum, ásamt græðgi, losta og afklippan af hári Flo, sem gengur framhjá Café Neró klukkan 08:46 á hverjum morgni. Hún hefur verið að kljást við flösu undanfarið. Í öðru lagi eru alheimsöflin að refsa mér fyrir eitthvað sem ég á eftir að gera. Ég á það svosem alveg skilið, ég er jú fæddur syndugur og ég hef ekki verið duglegur að vinna af mér þær syndir. Sundsprettur í ánni Styx með hinum saurugu ræflunum sem hafa höfuðin snúin aftur svo framtíðin er þeim óljós bíður mín. Ég hef núna stungið mig tvisvar á brenninetlum, í bæði skiptin óaðvitandi auðvitað. Í fyrra skiptið var ég einfaldlega á gangi þegar gróðurinn stekkur á mig, öskrar á mig og lemur, þrátt fyrir að ég afhendi öll verðmæti. Í seinna skiptið var ég að skríða undir gaddavírsgirðingu til að komast nær hestunum. Það er allt önnur saga. Þrátt fyrir ægilegt orðspor er þessi planta ekkert sérstaklega kvalafull og einkenni hverfa afar skjótt. Líkt og sturtuferð í fangaklefa.

Ég hef núna á þessum tíma fundið hlið helvítis, það er við hliðina á bakaríinu í miðbænum, beint á móti hárstofunni. En mér tókst að láta þá hleypa mér inn eftir væl, suð og grenj (borið fram grenjhe). Þar bauðst mér kynningarferð um níu hæðir helvítis, fékk að prufa að ýta stærðarinnar hnullungi upp endalausa hæð, velta mér um í eigin saur á meðan þokkadísir slá mig með rósum og toga í fótinn á Júdasi sem Satann japlar á til eilífðar nóns. Eftir það var mér sparkað út og sagt að koma aldrei aftur. Ég á ekki einu sinni heima í helvíti. Langar ekkert meira en að komast þangað inn aftur.

2 Responses to “Hjalli litli og fáránlegar fíknir”

  1. Jonni Says:

    *vandræðaleg þögn*

  2. Hjalli Says:

    *vandaedaleg thogn* ehh svo..


Leave a Reply