Hjalli litli og sólgleraugun einu
maí 29, 2007
Kæri lesandi
Mikið hefur gengið á undanfarið, mikið af engu. Ég hef einfaldlega verið að njóta þess að vera einhverskonar skinnpoki fullur af beinum sem veltist af og til um í öldum þess sem gæti hugsanlega kallast “lífið” mitt. Hvert sem það stefnir. Ég þarf einhverskonar stoð í mitt líf núna. Eitthvað sem ég veit að ég get reitt mig á, eitthvað ógeðislega töff. Ég hef það í fórum mínum reyndar. Og það eru sólgleraugun hennar ömmu. Ég kom með þau hingað til útlandsins því þau eru augljóslega vopn sem hafa ótrúlega krafta í sig bundið. Og þau gáfu mér einfaldlega mikilfenglega áru sem heillaði alla nærstadda bókstaflega upp úr skónnum, afskaplega undarlegur hæfileiki. En það gerðist svo fyrir ægileg mistök að þau gáfu sig í hita leiksins og brotnuðu eftir mikinn bardaga. ( Ég var dansandi uppá sviði, að beygla minn búk eins og honum er einum lagið þegar ég lem sjálfan mig í andlitið og þeyti gleraugunum út í sal, þar sem brjálaðir aðdáendur traðka á þeim. )
Eftir þann harmleik safnaði ég saman brotunum, sem ég fann, öll nema eitt. Og beið þess tíma að þau yrðu sett saman á ný svo veldi mitt verði fullkomnað. Sá dagur var í dag, ég drullaðist loksins út í búð og keypti “ofurlím” eða “superglue”, ég á ekkert eftir að gera nema setja þau saman, en það er ægileg athöfn sem inniheldur skóg, álfa og einhverskonar litla kalla með loðnar tær. En mig vantar eitt brot í gleraugun, mig grunar að það sé fast í skepnunni sem ég barðist við, stungið á kaf í skósólann á ægilegu, skelfilegu skrímsli. ( Eða fallið niður um eitthvað niðurfall þar sem vansvefna nagdýr nota það í vafasamar athafnir. ) Hvað get ég notað í staðinn fyrir þetta brot? Ég verð ekki heill aftur fyrr en gleraugun hafa náð sínu fyrra veldi. Engin geta komið í staðinn, þetta eru jú sólgleraugun einu.
maí 29, 2007 at 6:00 pm
Hvernig næ ég í þig? Hvaða númer þarf ég að hringja í til að ná í þig? Það er komið 2 Payment failure á fjandanum þannig að við þurfum að láta nýtt kort (?) eða leggja inn á þetta sem er skráð eða eitthvað og svo þarf ég að láta þig fá user og pass og allt á nýju fjandinn.com
WOOHOO! hafðu samband asap.