Hjalli litli og sölubrellur
maí 31, 2007
Kæri lesandi
Ég kaupi mér sjaldan klæðnað af einhverju tagi, vanalega nota ég þann klæðnað sem ég hef einhvernveginn komið höndum yfir þangað til hugtakið “klæðnaður” hættir að vera nothæft og ‘óviðeigandi nekt’ tekur við. En það kemur fyrir að ég slæ til og fjárfesti í vel samsettum klæðabútum. En aðstæðurnar þurfa að vera nánast fullkomnar. Sólin þarf að vera hátt á lofti, ef ekki þá að kveldi til ef til vill eftir tónleika. Það þarf að vera útsala, svo mér líði vel með fjárfestinguna og auðvitað þarf flíkin að heilla mig sérstaklega svo ég einfaldlega nenni að leggja í það heilalausa ferli að máta, velja og borga fyrir.
Þessar aðstæður voru til staðar um daginn, og viti menn ég fjárfesti í flík, einfaldlega vegna þess að hún átti að vera á helmings afslætti. Allt benti til þess að þessi flík ætti bara að vera á helmings afslætti, allt frá litla bláa skiltinu á fatahenginu til rauðhærða aðstoðarmannsins. Svo kom að því skrefi að ég átti að borga, allt gekk vel fyrir sig þangað til afgreiðsludaman rétti mér kvittunina, en þar var allt annað verð en mér hafði skilist, að flíkin ætti að seljast á. Ég var hissa, undrandi reyndar. Og meira en lítið ráðviltur. Ég gaf afgreiðsludömunni vandræðalegt bros sem líktist frekar dauðu skordýri og gekk burt hægum skrefum. Hún seldi mér nefnilega flíkina á aðeins einum fjórða úr því verði sem hún var upprunalega. Kæti mín lísti sér í óstjórnlegum hlátri á miðri göngugötunni, það entist þangað til sígaunarnir ráku mig í burtu.
Ég sé fram á að þessi sölubrella verði komin í allar verslanir eftir stuttan tíma. Líkt og happdrætti kaupirðu dýrustu flíkurnar í þeirri von að hún sé í rauninni næstum þrisvar sinnum ódýrari en uppgefið verð segir til um. Sem minnir mig á það, sólin skín úti og ég held að útsalan sé enn í fullum blóma.
júní 12, 2007 at 1:33 pm
Haha, þessi stelpa er ekkert nema noob! Til hammó með flíkína samt, ég vona þessi flík sé tengd … latex?
júní 29, 2007 at 11:16 pm
Hahah.. æj Hjalli :) ..alveg merkilegt hvað þú ert fæddur til þess að verða bloggari. Það er alveg sama hvað þú ert að blogga um, hvort sem það eru tónleikar með Bítlunum sem þú fórst á (mjög svo áhugavert) eða dauð rotta inní harða disknum þínum (ekki svo áhugavert).. þér tekst alltaf að gera það að skemmtilegu lesefni. Segi nú bara til hamingju með þennan hæfileika lille mus. :)
júní 29, 2007 at 11:17 pm
…já og til hamingju með flíkina og óvænta afsláttinn að sjálfsögðu líka
júní 29, 2007 at 11:20 pm
já.. öhm.. biðst innilegrar velvirðingar á því að hafa verið svona léleg við að heimsækja síðuna þína. Ég hefði að sjálfsögðu aldrei kommentað (og þannig komið upp um mig) hefði ég uppgötvað nógu snemma að bloggið var skrifað fyrir mánuði síðan. :/
..en ég bæti upp fyrir þetta með FJÓRUM kommentum Í RÖÐ! ;)
júní 29, 2007 at 11:20 pm
æj damn… ég mismælti mig, ég meinti ÞREMUR kommentum. En… þetta er þá líklega bara FJÓRÐA kommentið. Þannig ég laug engu og við erum… sátt?
júní 29, 2007 at 11:22 pm
sjitt.. ég er búin að kommenta vandræðalega mikið. Fokk.. viltu plís halda áfram að vera vinur minn þrátt fyrir þessa óforbetranlegu hegðun mína hér í kvöld? :/