Kæri lesandi

Ég biðst velvirðingar á þessari ægilegu töf á dagbókarskrifum. Ég veit að þú kæri lesandi hefur eflaust litið hingað inn daglega í von um seyðandi ævintýrasögur af hinum margrómaða (svo ekki sé minnst á myndarlega) sjéntilmanni Hjalla, en auðvitað aðeins gripið í tómt. Þú kæri lesandi hefur eflaust liðið ægilegar kvalir, því þessi perla, þetta ægilega menningar undur sem er dagbókin mín er það sem þú bíður eftir með sjúklegri óþreyju dag eftir dag. Ég biðst einnig velvirðingar á því.

Ástæðan fyrir þessari hneysu, er eins og allt annað í mínu lífi, mjög margþætt. En fyrst og fremst er ástæðan sú að ég hef flutt aðal áherslu mína yfir á www.fjandinn.com þar sem ykkar einlægur og Jónas Reynir Gunnarson sitjum sveittir og skrifum miskunarlaust um áhugamál okkar. Ætlunin er jú að troða þessum áhugamálum, hver sem þau kunna að vera hverju sinni yfir á þig kæri lesandi. Auðvitað græðið þið einungis á vísdómi okkar og kunnáttu svo það er ekki nema að sjá að allir hagnist á þessari giftingu.

Hvað verður um dagbókina þína Hjalli og allar þessar vandræðalegu þagnir? spyrðu óttasleginn með öndina í hálsinum. Áætlunin er að nota þessa dagbók til þess að sýna krot sem ég geri helst dagsdaglega ásamt því að tala lítillega um það í hvert sinn, hvert ég er að fara með krotið mitt, hvað ég er að hugsa til þess að reyna að þróa það osfrv. Þetta verður innsýn inní huga snillings í stuttu máli.  Ég veit ekki nákvæmlega hvenær þessi áætlun mín kemst á fullt skrið en það er í nálægri framtíð. Þangað til verð ég að strá mínum einstöku gullmolum á www.fjandinn.com, sem er eins og þessi síða, í stöðugri þróun.

Ekki örvænta kæri lesandi, framtíðin er björt.. í augnablikinu, og það er bara á meðan þú hefur augun opin.

- Ef þér tekst að finna hæðni í þessum pistli hefur þú unnið þér inn ókeypis eiginhandaráritun frá mér.

2 Responses to “Hjalli litli og framtíðin”


  1. vá…mér leið eins og ég væri að lesa bréf frá forsetanum þetta var svo formlegt blogg!


  2. :) Bara að skilja eftir mig spor !


Leave a Reply